Finnst ég ekki hafa mikið að segja þessa dagana - er bara fram og tilbaka í vinnu - skóla - salsa. Gengur rosa vel með ritgerðina í augnablikinu

en svo í maí byrjum við á sjálfri rannsókninni sem verður aðeins meira krefjandi kannski...
Vorið er loksins farið að láta sjá sig hérna í Kaupmannahöfn

og ég er auðvitað hinn týpíski Íslendingur...um leið og sólin lét almennilega sjá sig í síðustu viku skellti ég mér í stuttermabolinn og kvartbuxurnar

var kannski aaaaðeins of kalt þegar maður hjólaði heim um kvöldið og sólin var farin. Hitinn er nú ekkert alltof hár ennþá en þetta er allt að koma

Helgin verður viðburðarrík - ætla að skella mér í Paella Partý á laugardaginn....fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er paella rosalega góður spænskur réttur með hrísgrjónum og allskonar fiski. Við mútta borðum þetta regluega þegar við erum á Spáni

En nú er þetta semsagt í boði á Havana (salsastaðnum mínum) á laugardaginn - kemur meiraðsegja ekta Spánverji til þess að elda
Víkingur mitt gamla og góða félag varð 100 ára í gær

óska hérmeð öllum Víkingum nær og fjær til hamingju með þennan áfanga! Nú væri bara óskandi að félagið yrði rifið upp og yrði að sama veldinu og þegar maður var að alast upp. Er sorglegt hvað félagið hefur drabbast niður...sérstaklega í handboltanum þar sem nú er enginn almennilegur kvennaflokkur lengur

Maður saknar gömlu góðu dagana þegar Víkin var pakkfull á leikjum Víkings og Stjörnunnar í kvennaflokki eða Víkings og Vals í karlaflokki og maður kom gjörsamlega raddlaus heim

Maður kíkir kannski á einn eða tvo fótboltaleiki í sumar til að styðja strákana uppí úrvalsdeildina...
Ásta og Stjörnustúlkur standa í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og ef þær vinna síðust 2 leiki sína að þá er titillinn í höfn

Yrði ekki amalegt fyrir systur að verða bæði bikar og Íslandsmeistari á sínu fyrsta ári með "the Star"

Svo nú er sko allsengin afsökun fyrir því að fara ekki á völlinn. Ríkey ég treysti þér í að hóa liðinu saman!

jæja.....back to framework for customer loyalty!
...p.s. stóðst ekki mátið að setja inn nokkrar myndir af litla draumaprinsinum mínum

með góðfúslegu leyfi mömmunar. Getið séð þær undir "Myndasöfn"