Jæja þá er þessi æðislega helgi að baki. Var alveg frábært að fá pabba og mömmu í heimsókn og sýna þeim borgina. Það var auðvitað dekrað við mann hægri og vinstri og ég get ekki neitað því að það var rosalega notalegt
Pabbi pantaði að fá að skrifa ferðasöguna svo hérna kemur hún :
Frábær ferð til Köben.
Lentum á Kastrup á fimmtudag og ástargullið tók á móti M&P...frábært að sjá hana. Tókum taxa til Fredriksberg og Nordre Fasanvej 119, 2 sal íbúð 11. Íbúðin er rosalega kósí og notaleg og sérstaklega hentug fyrir fátækan námsmann. Eftir hressingu að hætti Hönnu var stormað á japanskan veitingarstað sem hún var búin að studera. Stórskemmtileg kvöldstund með furðulegum réttum.......veit ekki alveg enn hvað ég borðaði..eitthvert japanskt 50 gramma kjöt....sem bragðaðist ágætlega. Vöknuðum á föstudagsmorgun með ilmandi bakkelsi sem Hanna hafði verslað í bakaríinu. Ekkert ofsaveður varð í Köben um nóttina heldur almennilegur íslenskur hafgoluvindur..hehehe. Hanna fór með okkur í markað í nágrenninu og síðan sýndi hún okkur skólann sinn sem er rétt hjá henni og ekki langt að fara á Rocky þangað. Stormuðum á Strikið og eyddum deginum í að spássera þar og skoða mannlífið. Um kvöldið var farið á góðan indverskan stað en Hanna er með matsölustaðina á hreinu.Borðuðum indverkst villimannakjöt....alveg frábært. Laugardagurinn byrjaði í hjúds stóru molli Fields....stærsta moll sem ég hef farið í. M&H nutu sín á milli búða og hæða, verslað og skoðað.....pottþétt að Ásta og Hanna njóta sín þarna í desember. Eftir stórinnkaupin var haldið til Nyhavn og pantað danskt smörebröd og notaleg stund þar en uppáhaldsstaðurinn minn í Köben er akkúrat Nyhavn og mannlífið þar. Stormað um bæinn og alveg frábært hvað Hanna er orðin innfædd, með borgina og dönskuna á tæru. Um kvöldið var farið á rosalega fínan veitingarstað sem Hanna hafði pantað.. Torvaldsen restaurant. Héldum þar upp á brúðkaups afmæli M&P og afmæli Hönnu 3. nóv. Allur pakkinn pantaður, forréttur, nautasteik og desert. Notaleg og frábær kvöldstund......vanntaði bara Ástu og Valla. Eftir festen röltum við um bæinn og skoðuðum kvöldlífið. Fórum heim í slotið og Hanna opnaði afmælispakka hægri og vinstri. Sunnudagurinn var notaður í að skoða konungshöllina, rölt um Strikið og videre. Þetta er heimferðadagur og áttum við góða stund saman og alveg frábæra helgi. Einnig má minnast á hvað Hanna á góðar vinkonur í kringum sig í Köben, Dagbjörtu og Guðbjörgu alveg toppeintök sem passa vel upp á stelpuna. Hanna fylgdi okkur á Kastrup....knús og kossar og næst er ferð Ástu til Hönnu og ekki nema um 5 vikur þar til báðar skvísurnar njóta lífsins í tivolí, stórmörkuðum og veitingarstöðum..........takk Hanna fyrir frábæra helgi...komum fljótt aftur.
M&P
Takk sömuleiðis fyrir æðislegan tíma
» 2 hafa sagt sína skoðun
Jæja loksins loksins koma pabbi og mamma í dag Maður er búin að sitja sveittur yfir dagskránni fyrir helgina svo þetta verði nú almennileg upplifun af Kaupmannahöfn Annars er spáð stormi í kvöld og nótt sem er náttúrulega alveg týpískt En það er þó betra að það gerist í nótt heldur en á morgun. Er búin að panta borð á rosa kósí stað á laugardagskvöldið get varla beðið...namminamm Annars hef ég nú ekki gert mikið af því að leika túrista hérna í Köben svo ég þurfti að afla mér smá upplýsinga svo maður muni nú allavegana virðast ágætlega upplýstur Ég er ekki einusinni búin að sjá þessa frægu hafmeyju ennþá er líka svo margt annað spennandi til heldur en þessir týpísku túristastaðir. Svo er ég líka búin að stúdera strætóferðirnar aðeins svo maður veit hvert maður er að fara hverju sinni ég fer auðvitað aldrei í strætó og sjaldan í metró - Mr Rocky hefur hingað til komið mér hvert sem ég vil fara
Þetta verður fín æfing í að leika guide áður en Ásta kemur í desember þá verður maður sko virkilega að standa sig þar sem stelpan er að koma í fyrsta skipti til Köben Ætli maður verði ekki að reyna að lesa smá í dag - maður gerir víst ekki mikið af því um helgina
Óska Ástu og FH stelpunum til hamingjum með bikarsigurinn í gær vona að þetta komi þeim á rétta braut
» 3 hafa sagt sína skoðun
Það er bikarleikur í kvöld á móti Akureyri í Krikanum. Þann leik verðum við sko að vinna Hef aldrei komist mjög langt í bikarkeppni og það er kannski tími til kominn?? Ég hef ákveðið að skrifa ekkert um síðasta leik, þar sem ekkert gekk upp hjá okkur svo ég segi bara PASS...þeir sem fylgjast með vita hvað ég er að tala um...já það má segja að við höfum verið rassskelltar
Núna eru mamma og pabbi á fullu að pakka og undirbúa ferðina til Köben...var einmitt að koma úr Dalselinu því ég þurfti að pakka inn nokkrum gjöfum..hhhmmmm hver skyldi vera að fá þær...hehehe
Ég og mútta fórum á sýninguna KONAN í laugardalshöll um helgina eins og örugglega allar konur á landinu því það var frekar troðið!! Þetta var ágætis sýning en kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir...síðan hitti í Nönnu á sunnudaginn, það var mjög gaman, hef ekki hitt hana frænku mína í allt of langan tíma
Svo áttu mamma og pabbi silfurbrúðkaup í gær...Svo til hamingju með það elsku foreldrar Þau áttu notalegan dag, fóru út að borða og svona! Ég, Hansa og Valli gáfum þeim dekur í laugum sem þau geta notað fyrir jólastressið
ætli það sé ekki komin tími á að fara að læra..bletsí
» 1 hafa sagt sína skoðun
Jæja þá er þetta haustfrí búið með áherslu á frí....var ekki alveg eins dugleg og ég ætlaði mér svo maður þarf að vera duglegur í vikunni...allavegana fram að fimmtudegi. Efast um að ég eigi eftir að geta lært neitt á fimmtudaginn - maður verður svo spenntur að fara útá flugvöll um kvöldið að sækja hjónin Vona að veðrið verði gott um helgina - er aðeins farið að kólna hérna og laufin eru farin að falla af trjánum. Hitastigið er nú samt ennþá yfirleitt yfir 10 gráðum svo ég kvarta nú ekkert!
Tók helgina frekar rólega, kíkti í mat til Dagbjartar og Andrésar á föstudagskvöldið - maður er bara komin með fasta áskrift í mat til þeirra ekki slæmt þar sem Andrés er eðalkokkur og maður fær alltaf eitthvað gómsætt að borða Á laugardaginn kúrði ég bara heima og horfði á sjónvarpið og át hellings af nammi Það þýddi auðvitað að ég þurfti að drífa mig út að hlaupa í gær svo maður haldi sér nú í smá formi enda alltaf gaman að fara útað hlaupa með Manchester húfuna eftir góðan sigurleik á Liverpool
Er búin að vera dugleg að elda á hellunum mínum en hugmyndarflugið er víst ekki upp á marga fiska svo ef ykkur dettur eitthvað sniðugt í hug annað en pasta og hrísgrjónagraut þá látið mig vita
Jæja það fer að styttast í hádegismatinn og það væri betra að vera aðeins byrjuð að lesa áður
Jæja...hef ekki opnað tölvuna í nokkra daga En fór til eyja á þriðjudaginn að spila við ÍBV, töpuðum 31-28 áttum sko sannarlega skilið að vinna þennan leik, spiluðum rosalega vel, besti leikurinn okkar hingað til...enn dómararnir sem voru að dæma voru alveg hrikalega slappir, þeir ráku okkur t.d. 11 sinnum útaf, það er næstum því heill hálfleikur einum færri og það er ekki hægt að vinna svoleiðis leiki Allt féll með eyjaliðinu..enda vorum við FH-stelpur hundsvekktar eyjaþjálfarinn og íbv-áhorfendur komu meira að segja til okkar og báðu okkur afsökunar á hrikalegri dómgæslu og sögðu meira að segja að þeir hafi ekki einu sinni átt skilið að vinna...ef andstæðingurinn segir þetta þá er eitthvað mikið að dómgæslunni!!! Enda mjög ósanngjarn sigur hjá eyjastúlkum en maður getur víst ekki breytt þessu eftir á!! En ég spilaði næstum allan leikinn og setti 5 mörk (stóð reyndar 4 á skýrslunni svo þeir hafa gefið einhverjum liðsfélaga mínum markið mitt..en það er svo sem í lagi meðan það er ekki sett á andstæðingana..hehe)
Á morgun tökum við að móti Stjörnunni í Krikanum..það verður erfiður leikur!!
Annars er voða lítið að frétta, er búin með eina viku í æfingakennslu og bara fjórar eftir..vúhú. Hlakka til þegar þetta verður búið! Svo fara m&p út til Hönnu í næstu viku svo við Valli flytjum aftur í Dalselið til að passa hana Töru Svo tel ég bara dagana þangað til ég fer til Köben..
hef ekkert meira spennandi að segja svo bleble
» 4 hafa sagt sína skoðun
Úfff eftir heilan dag í Ikea og 4 tíma í samsetningu á kommóðu og 1 tíma í samsetningu á eldhúsborði held ég að ég sé komin með nóg af Ikea í bili Svona samsetningar eru sko ekki fyrir óþolinmótt fólk eins og mig Sat á gólfinu heima hjá mér á mánudagskvöldið að setja þessa kommóðu saman og þurfti að taka á öllu mínu til þess að fá ekki Hönnukast (þeir sem vita ekki hvað það er.. you don´t wanna know!) á tímabili. En bévítans kommóðan hafðist og var komin upp um miðnættið Lagði ekki í eldhúsborðið sama kvöld svo ég setti það saman í gær - var sem betur fer minna mál þó byrjunin hafi verið smá erfið
En núna er íbúðin mín hinsvegar að komast í rétt horf á bara eftir að koma sjónvarpinu uppá kommóðuna og færa hlutina aðeins til og þá verður þetta komið Stóru fréttirnar eru þær að nú þarf Hannan að verða aðeins myndarlegri í eldhúsinu Er hvorki með örbylgjuofn né venjulegan ofn í mínu pínu ponsu litla eldhúsi . Bara tvær hellur svo nú verður maður bara að kokka
Hef svo verið að átta mig á nýja hverfinu svona smátt og smátt. Eitt það besta við Köben að er að það virðist ekki skipta máli hvar maður býr það er alltaf stutt í allar nauðsynjar. Til dæmis þá er matvörubúð í sama húsi og ég bý í, og í 1-2 mín göngufjarlægð eru 3 pizzastaðir (ef maður verður leiður á kokkinu ), bakarí og hjólaverkstæði. Svo er heldur ekki langt að hjóla í Frederiksberg Have sem er æðislegur garður til að hlaupa í - fór einmitt þangað í morgun rosa dugleg!
Kíkti niðrá Den Glade Gris í gær að horfa á mína menn taka KFC (kalla sko FCK KFC - Kentucky Fried Chicken ) í bakaríið þorði nú varla að láta sjá að ég væri Man Utd fan þar sem staðurinn var fullur af KFC bullum - en maður brosti nú samt út í annað munnvikið þegar maður fór heim
Jæja maður verður víst að fara að taka sig á í lærdómnum - búin að vera alltof löt í haustfríinu. Nú þarf að massa þetta!
Hanna til hamingju með íbúðina
Vorum að keppa í gær á móti FRAM, vorum með yfirhöndina næstum allan leikinn en hann var samt mjög jafn. Við vorum tveimur mörkum yfir og í sókn þegar 1og 1/2 mínúta var eftir og sigurinn nokkurn veginn í höfn..en nneeiiiii það getur náttúrulega allt breyst á stuttum tíma..það var varið hjá okkur og við fengum mark á okkur...og þá var c.a. 1 mín. eftir og við einu yfir og á leið í sóknina..þá var aftur varið hjá okkur og framstúlkur skoruðu á síðustu sek. úr hraðaupphlaupi svo þær náðu jafntefli Þetta var mjög grátlegt því við vorum alveg að sigra...en svona er víst handboltinn, hann getur breyst á einni sekúndu En við fengum eitt stig og erum því frekar neðarlega í deildinni í 7 sæti held ég. En ég var í byrjunarliðinu og spilaði alveg 50 mínútur, og skoraði öll mörkin mín úr víti...aldrei hefur það komið fyrir...hehehe en ég man ekki hversu mörg held samt 4? pabbi kannski commentar því hann er alltaf með mörkin mín á hreinu...hehehe
En á morgun förum við til Eyja að spila..svo þar verðum við að næla okkur í tvö stig!!!
Svo byrjaði ég í æfingakennslunni í dag..svo það verður brjálæði hjá mér næstu fimm vikurnar að reyna að kenna þessum krökkum eitthvað..haha Svo á ég að skrá mig í lokaverkefni í dag...svo ég segi bara úúffff...trúi ekki að ég sé að fara að klára þetta nám
....hef bara ekkert til þess að segja meira í bili..hehe
Já takk fyrir ég er flutt!!! Fékk símtalið í hádeginu í gær að ég gæti fengið afhent um miðjan dag svo ég ákvað bara að taka þetta með stæl og flytja samdægurs. Plataði Andrés sem er stóri og sterki kærastinn hennar Dagbjartar að koma og hjálpa í flutningunum og því náði ég að sofa mína fyrstu nótt á nýja heimilinu strax í gær Á bara eftir að fara í Ikea að kaupa nokkra hluti og þá er litla sæta íbúðin mín fullkomin
Ég náði að standa við stóru orðin og tók helgina svo bara rólega. Enda var alltof spennandi að byrja að koma sér fyrir í gær til þess að maður tímdi að fara eitthvað út á lífið Var voða myndarleg að þrífa skápa og hillur fram eftir nóttu. Einn besti kosturinn við íbúðina er að það tekur aldrei lengur en 1 - 1 1/2 tíma að þrífa hana því hún er svo lítil
Ég gerðist svo fræg að borða sushi í fyrsta sinn (nokkurn veginn) í gær. Bæði Dagbjört og Guðbjörg eru forfallnir sushi lovers og eru alveg desperat að fá mig í klúbbinn. Well góðu fréttirnar fyrir þær er að mér fannst þetta ekki hræðilegt en ég get nú samt ekki sagt að mér hafi fundist þetta vera eitthvað æðislegt. Ég borðaði þó allavegana fisk í fyrsta skipti síðan ég flutti út - ég er viss um að mamma mín er þó ánægð með það þótt hann hafi verið hrár Svo er mér líka sagt að sushi sé matur sem flestum finnst vont í fyrsta skiptið, alltílagi í annað skiptið og svo sé bara no going back...við sjáum til hvort það eigi eftir að gerast með mig
Vona að ættin fjölmenni svo í Krikann í kvöld að horfa á FH spila á móti Fram hef á tilfinningunni að þetta verði góður dagur fyrir Ástu og co enda gáfu mínir menn í United forsmekkinn í gær
» 6 hafa sagt sína skoðun
Jæja aftur komin helgi - hafði vonast eftir því að fá íbúðina afhenta í dag en það verður því miður að bíða eitthvað þar sem núverandi leigjandi er ekki ennþá búinn að fá sína nýju íbúð afhenta Fæ hana vonandi áður en helginni lýkur en í versta falli í næstu viku.
Guðbjörg stendur í flutningum í þessarri viku svo maður er allavegana komin í æfingu að flytja fluttum allt litla dótið hennar á miðvikudaginn og svo í dag eru það stóru hlutirnir...úfff nú kemur sér vel að hafa lyft í sumar En greyið Guðbjörg þarf að troða öllum húsgögnunum sem ég átti að fá inní nýju íbúðina fram yfir helgi og ef ég verð ekki búin að fá afhent á mánudag þá mun ég troða mér líka inn til hennar þar sem ég skila herberginu á Leifsgötu af mér þá
Annars er ég komin í haustfrí í heila viku núna þetta er eitthvað sem mér finnst að íslenskir skólar ættu að taka upp - gott að fá smá pásu og vinna í verkefnum og undirbúa sig undir próf. Í dag er svo menningarnótt hérna í Kaupmannahöfn svo það er mikið um að vera. Verslanir á Strikinu verða opnar til miðnættis í kvöld og það eru atburðir út um allt. Veit af íslenskri tískusýningu sem verður haldin í Christiansborg í kvöld. Var að hugsa um að kíkja kannski á þetta aðeins í eftirmiðdaginn en svo ætla ég að taka kvöldið rólega og heimsækja Dagbjörtu í Valby. Verður ekta stelpukvöld með video og nammi Er að hugsa um að taka þessa helgi rólega - fór reyndar á Nexus í gær (skólabarinn) svo stefnan er að taka því rólega í kvöld og morgun.
...og það eru tæpar tvær vikur í að ég fái pabba og mömmu
Það er frekar langt síðan ég hef skrifað eitthvað..ekki nógu gott!!! Ég er varla búin að vera viðræðuhæf því mikill tími hefur farið í undirbúning á vettvangsnámi. Ég er s.s. að fara að kenna í Ingunnarskóla á mánudaginnn í fimm vikur..úfff En ég ætla að vera dugleg að kíkja á Eddu frænku í hléum og pásum enda ekki nema nokkrar mín. að labba
En í dag er sérstakur dagur því IKEA hefur opnað nýja og stærri verslun..úú hvað ég hlakka til að kíkja þangað Hanna þú kemur sko með mér í gott IKEA-rölt þegar þú kemur á klakann...og það er meira að segja búið að jólaskreyta Ég hlakka ekkert smá til jólanna..ætla að reyna að fara að klára bucillusnjókarlinn minn (fyrir jólakort) sem amma gaf mér..náði nebbla ekki að klára hann fyrir síðustu jól svo ég ætla að byrja snemma í ár...kannski bara um helgina..hehe
Svo er ég að fara að keppa á sunnudaginn..aldrei gaman að spila á sunnudögum því maður er alla helgina að bíða eftir leiknum ´
Ég, mamma og pabbi kíktum á víkingsleik á sunnudaginn síðasta, en það voru old girls víkings sem voru að spila..frekar þungar á sér en hafa samt sem áður engu gleymt..hehe!! Einhvern tímann verður maður svona..spilar bara á reynslunni en í engu formi..hahah En þar fékk pabbi sko útrás og fékk að kalla ÁFRAM VÍKINGUR!!! hehehe frekar fyndið...enda leið honum frekar vel á eftir Mamma er hins vegar svo mikill FH-ingur að hún á ekkert í erfiðleikum með þetta...núna heldur hún því fram að ég sé loksins komin í rétta liðið..
En æfingin mín fer að byrja svo later....
Jæja bara fimm dagar í flutninga, bara 17 daga í pabba og mömmu og (bara) 60 dagar í heimsókn frá Ástu...og já fyrst ég er byrjuð á þessu bara 76 dagar til jóla Já maður hefur sko mikið til að hlakka til
Aðeins frá helginni: fór í geðveika 3ja réttaða máltíð á föstudagskvöldið til Soffíu og Jan...úff borðaði á mig gat. Á laugardaginn kíkti ég aðeins í bæinn - þurfti reyndar að fara gangandi þar sem Mr Rocky var eitthvað veiklulegur svo ég fór með hann á verkstæði þar sem þurfti að leggja hann inn í tvo daga Ég fæ hann seinnipartinn í dag...get ekki beðið - það er búið að vera hræðilegt að vera hjólalaus alla helgina! En já ég ákvað að kíkja aðeins í miðbæinn á laugardaginn og þvílík stemming. Það var nefnilega landsleikur seinna um daginn á milli Danmerkur og N-Írlands. Svo bærinn var meira og minna grænn, uppfullur af Írum og írskri stemmingu og auðvitað svo rauðum dönum. Allir strætó-arnir flögguðu danska fánanum svo þetta var bara eins og maður væri staddur á þjóðhátíð...svona dansk-írskri
Um kvöldið fór ég svo í ammæli til Christinu sem er norsk vinkona mín - það var rosa stuð...held barasta að ég verði orðin sleip bæði í dönskunni og norskunni áður en langt um líður kíktum á einhvern næturklúbb sem heitir Luux aðeins eftir partýið en mín var orðin pínu lúin um 4 leytið svo ég læddist út á næsta Macca og svo heim sú gamla þolir ekki endalaust djamm
Gærdagurinn var svo tekinn í gjörsamlegri leti - reddaði mér nebblilega fyrstu 5 þáttunum í seríu 2 af Prison Break svo það var kúrt uppí rúmi með tölvuna og pizzu alveg til rúmlega tvö Svo ákvað ég að drífa mig aðeins út og fór og kíkti á nýju íbúðina. Leist rosa vel á þetta allt saman - parket á gólfum og stórt og gott baðherbergi svo ég get barasta ekki beðið eftir því að flytja inn
Salsatími nr 3 er í kvöld - maður ætti kannski að fara að æfa sporin
Þá er ég búin að panta ferð til Köben 8. desember sama dag og ég klára prófin Ég á flug kl. 14:15 á föstudeginum svo það er bara beint upp á flugvöll eftir prófið..ekki slæmt jíbbí ég get hreinlega ekki beðið eftir að komast út til Hönsu minnar. Satt að segja þá hef ég aldrei komið til Köben, svo ég á eftir að upplifa þetta allt saman, tívolí-ið, hafmeyjuna, STRIKIÐ (að sjálfsögðu) o.fl. Hanna þú sérð um að gæda!!! Svo kem ég heim seint að kvöldi 12. des. svo þetta verður brilliant ferð Hlakka líka til að upplifa jólastemmingu í öðru landi en bara á Íslandi...
Við FH-stelpur sátum hjá í þessari umferð og var því engin leikur hjá okkur um helgina...ágætt að fá góðan tíma til þess að undirbúa næsta leik sem verður á sunnudaginn 15. okt.
Vildi nú bara láta vita að ég væri á leið til köben eftri akkúrat tvo mánuði...vvúúúúhhhúúú
Ég er búin að fá íbúð!!! Loksins loksins er séð fyrir endann á minni íbúðarleitar lönguvitleysu Íbúðin er mjög nálægt skólanum sem er einstaklega hentugt þar sem skólinn er mjög miðsvæðis í Kaupmannahöfn, semsagt í Fredriksberg fyrir þá sem eru kunnuga hér Íbúðin er sæt og kósí (alveg eins og ég ) 35fm stúdíóíbúð og ég fæ hana afhenta eftir ca viku sem passar ótrúlega vel þar sem ég byrja í haustfríi frá og með næsta föstudegi. Það sem er einnig mjög hentugt við þetta alltsaman er að Guðbjörg er að flytja á sama tíma og ég fæ fullt af dóti frá henni sem hún kemur ekki fyrir í nýju íbúðinni sinni semsagt happy happy ending
Helgin núna verður einnig viðburðarrík er að fara í mat til Soffíu í kvöld en hún er stödd á landinu í heimsókn. Býr hjá vini sínum sem ætlar að bjóða okkur Guðbjörgu í mat Þetta verður 3ja kvöldið í röð sem mér er boðið í mat Var boðið í stórveislu til Dagbjartar og Andrésar á miðvikudagskvöldið þar sem borið var fram hin ljúffengasta nautasteik með tilheyrandi meðlæti og eftirrétt..namminamm Í gær var ég svo hjá Guðbjörgu í hennar frægu thai súpu sem er algjör snilld svo þessi vika er búin að vera ein veisla
Á morgun fer ég svo í ammæli til einnar af norsku vinkonum mínum svo það verður eitthvað partýstuð á minni þá líklegast.... Svo þarf maður bara að fara að herða sig í lærdómnum því prófin eru að fara að nálgast og með flutningunum og öllu þá þarf maður að skipuleggja sig vel því það er sko stefnt á toppeinkunn (úff eins gott að maður standi sig fyrst maður er að fullyrða þetta svona á netinu )
seeya later....
» 5 hafa sagt sína skoðun
Fyrstu tvö stigin komin í hús...jíbbí Við unnum Akureyri í gær 21-18..naumur sigur en góður sigur Við vorum undir í hálfleik 10-7 en náðu svo að rífa okkur upp í seinni hálfleik. Það er alltaf erfitt að fara norður og keppa, við sátum t.d. í rútu í 5 og 1/2 tíma svo við vorum pínu stirðar Ekki skemmtilegt að keyra fram og til baka á einum degi...rúmir 10 tímar í rútu..iss ekki alveg nógu gott. Ég var komin heim kl. 3:00 í nótt svo maður er ekkert útsofin En ég fékk að spila 32 mín...bara til að hafa þetta akkúrat..hehe Náði að setja 5 mörk og þar af eitt víti.. aldrei fékk ég að taka víti í Víking..hhmmmm??? Næsti leikur er svo sunnudaginn 15. okt á móti Framstúlkum..það á eftir að vera hörkuleikur. Svo við fáum eina og hálfa viku til að undirbúa þann leik.
En að hversdagsleikanum..þá er alveg brjálað að gera í skólanum...rúm vika í vettvangsnám og ég er að verða rosa stressuð Við mæðgurnar tókum smá dúllerídag í dag og borðuðum saman og kíktum í bæinn..alltaf gaman að skoða föt og búsáhöld..haha Hanna þú verður svo að senda mér afmælislista því það styttist í afmælið..hhmmmm!!!! Annars færðu enga afmælisgjöf..hehe
ANTM er að byrja svo later......!!!
Nú er víst komið að skuldadögunum eftir sólardagana í september er spáð rigningu næstu vikuna, alveg fram á sunnudag Það var þvílíkt úrhelli hérna í gær - alveg svona ekta útlensk rigning með þrumum og eldingum, var bara fegin að vera ekki úti á hjólinu þegar þetta reið yfir.
Ég er byrjuð í salsatímum á mánudagskvöldum fyrsti tíminn var fyrir viku síðan og svo fór ég aftur í gær. Er í þessu með nokkrum stelpum úr bekknum og Guðbjörgu. Fannst fyrsti tíminn ekkert rosalega spes, við vorum bara í sömu basic sporunum allan tímann en það var miklu betra í gær . Maður verður komin með salsasveifluna á fullt swing eftir nokkra tíma Og það sem er sniðugt við þetta er að þetta er eiginlega dönskukennsla í leiðinni þar sem kennarinn talar auðvitað dönsku í tímunum. Reyndar talar hann ekkert sérlega góða dönsku þar sem hann er frá Kúbu en hann talar nákvæmlega enga ensku svo maður neyðist til að tala dönsku...já eða spænsku sem reyndar er eiginlega meira freistandi en ég ætla nú að reyna að fókusa á dönskuna á næstunni...kannski ekkert sniðugt að flækja þetta með spænskunni. Maður lærir hana bara þegar við systurnar kaupum sumarhús á Spáni í framtíðinni
Verð að hrósa Glitnisbanka aðeins - Systa þetta er sko besti bankinn Var að stofna gjaldeyrisreikning svo lánið frá Lín gæti farið beint inn í dönskum krónum. Þetta er búið að vera eitthvað vesen þar sem þetta er ný þjónusta hjá Glitni og er því ekki farin að ganga snuðrulaust fyrir sig. En þjónustufulltrúinn minn í bankanum er búin að vera þvílíkt næs - í beinu símasambandi við mig á hverjum degi og þar sem þetta dregst eitthvað áfram þá ætlar hún bara að símsenda pening frá bankanum sem ég fæ á einhverri spes heimild á meðan. Go Glitnir
Ætla að halda áfram að læra fékk algjört sjokk á föstudaginn þegar kennarinn sagði að við værum hálfnuð með kúrsinn