Agnarsdætur

Hansan og Ástan

30.11.2007 15:33:33 / Hanna

Viðburðalaust að undanförnu

Ástæðan fyrir engu bloggi undanfarna viku er er mjög einfaldlega sú að undanfarin vika hefur verið nokkuð viðburðalaus. :$ Fyrir utan vinnu og prófalestur þá hefur ekki mikið margvert gerst og þá er auðvitað engin ástæða til að blogga :P

Úrslitin á Parken í síðustu viku var allavegana ekki ástæða til blogs eins og frænka beinti réttilega á :evil:  Reyndi nú að koma auga á hana og Hannes eftir leik en hélt að þau hefðu flutt sig í aðra stúku - skulda þeim víst sightseeing um Köben sem þeim er velkomið að collecta þegar þau vilja :haha:

Um síðustu helgi héldum við vinkonurnar úr skólanum julefrokost heima hjá tveimur norskum, þar sem hver og einn átti að koma með ákveðið af hinum týpíska danska julefrokost matseðli. Þetta var mjög vel heppnað og kósí fyrir utan að sú sem átti að koma með rúgbrauð forfallaðist á síðustu stundu sem var náttúrulega ekki alveg nógu gott þar sem rúgbrauðið er auðvitað eitt af uppistöðunum í julefrokost :$

Helginni verður að mestu leyti eitt í próflestur og svo koma náttúrulega pabbi og mamma á miðvikudaginn næsta svo þá verður nóg af skemmtun :haha:  Það er búið að plana ferð til Helsingör og Malmö og svo náttúrulega allt það sem Köben hefur uppá að bjóða ;) Er eiginlega ekkert byrjuð að kaupa jólagjafir svo maður þarf líka að nota tækifærið og kíkja aðeins í búðir ;)

...og þar sem 1 des er á morgun þá stenst ég ekki lengur að setja síðuna í jólabúninginn því.....í dag eru einungis 24 dagar til jóla!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 12:24:51 / Hanna

Danmörk - Ísland

Jæja þá er það Parken í kvöld :haha: búin að hlakka lengi til þess að fara á þjóðarleikvang Dana á alvöru leik ;) Vona bara að stemmingin verði góð í kvöld þrátt fyrir að hvorugt liðið hafi að neinu að stefna og að mínir menn munu standa sig ;) Vil ekki neinn 14-2 fíling sko :evil:

Annars ég er komin í svo mikið jólaskap að ég á erfitt með að einbeita mér að nokkrum sköpuðum hlut :haha: Nú eru bara 2 vikur í að pabbi og mamma komi út í jólastemminguna :haha: Er að fara með vinkonunum í julefrokost um helgina sem ætti að hita mann vel upp :D

Síðasta föstudag fór ég svo í síðasta tímann sem ég fer í (vonandi) í þessu lífi :haha: Nú á ég bara 2 próf og eina "litla" mastersritgerð eftir áður en ég útskrifast :) Æðislegt að þurfa aldrei aftur að fake-a áhuga á þurrum fyrirlestrum :haha::haha:

í dag eru 33 dagar til jóla :haha: 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 10:58:43 / Hanna

Komin afur til Köben eldri og vitrari

Lenti á danskri grundu fyrir rúmri viku eftir frábæra Íslandsför þar sem ég fékk æðislegan ammælisdag frá familíunni :haha: Ísland var æðislegt :D tók á móti mér með hraustlegu haustveðri sem breyttist svo í yndislegt vetrarveður með jólaívafi fyrri helgina :) Fjölskyldan dekraði auðvitað við mig á allan mögulegan hátt sem náði toppi á sjálfan ammælisdaginn þegar maður var vakinn eldsnemma til að mæta í dekur í Laugum Spa :haha: Svo eftir kökur og pakka seinna um daginn var haldið á Grillið þar sem þriggja rétta máltíð var auðveldlega torgað ;) Vantaði bara Ástu til að gera daginn gjörsamlega fullkomnan en þar sem ég hef ekki verið viðstödd tvo síðustu ammælisdaga hjá henni þá getur maður varla kvartað ;)

Fyrsta vikan tilbaka í Köben hefur svo einnig verið viðburðarrík :D Náði varla að henda töskunum inn á mánudaginn í síðustu viku áður en ég þaut í mat til dönsku fjölskyldunnar minnar :D Þar var boðið uppá eplaskífur og heitt kakó í eftirrétt svo maður komst þvílíkt í jólaskapið!

Síðasta miðvikudag gerðist svo stórviðburður þegar Hanna Harpa tók upp handboltann í fyrsta skipti í rúm 10 ár....you heard it right! Mín er byrjuð að æfa handbolta aftur :haha::haha: skemmti mér konunglega á fyrstu æfingunni og get ekki beðið eftir þeirri næstu ;) Nú fer maður að gefa þeirri litlu smá ráð fyrst maður er nú komin í atvinnumennsku í Danmörku...múhahahahah :klikk:

Klara vinkona var svo hérna um helgina og einsog sannur Íslendingur þá keypti hún að sjálfsögðu upp allan lagerinn hjá H&M og fleirri búðum :lol: Á laugardagskvöldið héldum við svo uppá þrítugsammælin okkar beggja með smá partýi niðrí bæ :haha:

Er komin í þvílíkt jólaskap enda er Köben á leið með að verða fullskreytt og við fengum að meiraðsegja pínu snjó hérna í fyrradag svo ég er byrjuð að telja niður!!!

Í DAG ERU 41 DAGAR TIL JÓLA :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 16:44:06 / AstaBjork

Hanna afmælisbarn

Hanna varð þrítug um helgina (3. nóv) og naut þess að vera í faðmi fjölskyldunnar á þessum tímamótum. Því miður var ég í Frakklandi að keppa :( Svo Valli var staðgengillinn minn á afmælisdeginum. Afmælisdagurinn byrjaði með smá óvissu þar sem mamma, pabbi og Hanna fóru í nudd og dekur í Laugum, síðan fékk hansan afmælispakka, köku og flott út að borða um kvöldið. Svo ég held að hún hafi verið nokkuð ánægð með daginn, eða I hope so ;) Ég kom svo heim á sunnudaginn svo ég náði að vera með afmælisbarninu aðeins áður en það fór heim á mánudaginn :)

Það var rosalega notalegt að hafa hana Hönnu hérna hjá okkur í rúma viku. Mamma og pabbi fara síðan til hennar í desember og Hanna kemur á klakann 14. des, svo þetta verður fljótt að líða..

Þar sem ég náði ekki að blogga um afmælið á afmælisdeginum þá ætla ég að enda þetta svona...

 TIL HAMINGJU MEÐ 30 ÁRA AFMÆLIÐ ELSKU SYSTIR  :D

-knús og kossar-


» 3 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 15111
Skólar
amigos